BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Ásta Eir skrifar undir nýjan tveggja ára samning

09.11.2020

Bakvörðurinn Ásta Eir Árnadóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Ásta Eir er Bliki í húð og hár og kom fyrst inn í meistaraflokkinn árið 2009, þá 16 ára gömul. Síðan þá hefur hún spilað 172 leiki í öllum keppnum fyrir liðið og skorað í þeim tíu mörk.

Eftir að hafa spilað sinn fyrsta A-landsleik í fyrra kom Ásta Eir alls við sögu í átta leikjum með landsliðinu fram á haust. Áður átti hún að baki 25 leiki með yngri landsliðunum.

Ásta Eir hefur verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins síðustu ár, en hefur ekkert verið með í ár þar sem hún eignaðist dreng í sumar. Blikar óska Ástu og fjölskyldu innilega til hamingju og eftirvæntingin er mikil að sjá hana aftur úti á vellinum í græna búningnum.

Til baka