BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Áslaug Munda framlengir

09.11.2018

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik og er nú samningsbundin til næstu þriggja ára.

Áslaug Munda er fædd árið 2001 en er þrátt fyrir það með mikla reynslu á bakinu. Hún kom til Blika frá Völsungi síðasta vetur, en er uppalin hjá Hetti. Með meistaraflokki Völsungs spilaði hún 23 leiki og skoraði í þeim 7 mörk. Á sínu fyrsta tímabili með Blikum lék hún 26 leiki í öllum mótum og skoraði í þeim 3 mörk. Áslaug Munda hefur átt fast sæti í yngri landsliðum Íslands. Hún á að baki 11 leiki og eitt mark fyrir U17 ára landsliðið og 8 leiki og fyrir U19 ára landsliðið.

Við erum hæstánægð með þær fréttir að Áslaug Munda hafi ákveðið að framlengja samninginn við Breiðablik. Hún hefur sýnt gríðarlega miklar framfarir í Kópavoginum og við hlökkum til að sjá hana vaxa áfram hjá félaginu okkar

Til baka