Tveir efnilegir leikmenn skrifa undir 3 ára samning við Blika.

06.02.2012
Stefán Þór Pálsson og Hlynur Örn Hlöðversson ganga til liðs við Breiðablik. Stefán Þór á að baki sautján leiki með meistaraflokki ÍR í fyrstu deildinni og í Valitor- bikarkeppninni. Hlynur kemur frá knattspyrnufélagi Fjallabyggðar sem leikur í 2. deildinni. Þrátt fyrir ungan aldur, en hann er fæddur 1996, þá hefur þessi stóri og stæðilegi markmaður spilað leik með meistaraflokki.



Breiðablik vann FH í Faxaflóamótinu

04.02.2012
Breiðablik vann FH 2-0 í sínum fyrsta leik í Faxaflóamótinu þetta árið. Leikurinn var mjög jafn framan af og mættu FH stúlkur vel stemmdar í leikinn. Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu um boltann en tvö mörk voru dæmd af Blikastúlkum vegna rangstöðu í fyrri hálfleik sem var frekar jafn. Blikastúlkur tóku síðan öll völd í síðari hálfleik og sigruðu frekar örugglega 2-0 en bæði mörk liðsins skoraði Rakel Hönnudóttir.



Leikur Breiðabliks og Stjörnunnar flautaður af vegna rafmagnsleysis í Kórnum

04.02.2012
Í stöðunni 2-2, og Stjörnumenn einum leikmanni færri, er búið er að flauta úrslitaleik Fótbolta.net mótsins milli Breiðabliks og Stjörnunnar af vegna rafmagnsleysis.



 

NÆSTI LEIKUR KARLAR

14.02 | Fótbolti.net 2012
Breiðablik - Stjarnan

NÆSTI LEIKUR KONUR



LEIKMENN

8 leikir
0 mörk
A-DEILD: 1/0
B-DEILD: 0/0
BIKAR: 1/0
DEILDAB: 6/0
EVRÓPA: 0/0
MEIST.K. KSÍ 0/0

VALLARGERÐI TV

MYNDASAFN