Vörður áfram aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Breiðabliks
29.10.2015
Vörður tryggingar og Knattspyrnudeild Breiðabliks hafa endurnýjað samning sín á milli um að Vörður verði áfram aðalstyrktaraðili deildarinnar til næstu þriggja ára. Samningurinn er mikið fagnaðarefni og mikilvægur fyrir báða aðila og styrkir enn frekar öflugt uppeldis- og afreksstarf stærstu knattspyrnudeildar landsins sem og að styðja meistaraflokka félagsins í efstu deild karla og kvenna.
"Knattspyrnudeild Breiðabliks er gríðarlega ánægð með að tryggja sér áfram samstarf við okkar stærsta styrktaraðila undanfarinna 6 ára. Okkur er það mikils virði að vera í samstarfi við Vörð áfram sem skýtur enn frekari stoðum undir starf okkar og rekstur deildarinnar. Samstarfið er búið að vera farsælt og mun vonandi blómstra enn frekar á komandi árum„ segir Borghildur Sigurðardóttir, formaður knd.Breiðabliks
"Með samstarfi við Knattspyrnudeild Breiðabliks gefst Verði tækifæri til að rækta að hluta þær samfélagsskyldur sem félagið hefur sett sér. Innan deildarinnar er unnið gríðarmikið uppeldisstarf og þorri iðkenda sem er yfir 1.400 eru unglingar og börn, stúlkur og drengir sem öðlast félagslegan þroska á sama tíma og lögð er stund á heilbrigða íþróttaiðkun. Verði er það er sönn ánægja að endurnýja samstarfið til næstu þriggja ára„ segir Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar trygginga.
Knattspyrnudeild Breiðabliks