Viltu vinna helgarferð fyrir tvo til Evrópu?
20.01.2015Þá er Getraunaleikur Breiðabliks svarið!
Þann 24. janúar fer í gang getraunaleikur Breiðabliks. Heildarverðmæti vinninga er um 500.000 kr. Auk þess eiga þeir sem senda seðlana sína áfram í getraunakerfi Íslenskrar Getspár möguleika á að vinna milljónir í viku hverri.
1 verðlaun: Helgarferð fyrir 2 til Evrópu til einhvers af áfangastöðum Icelandair.
2 verðlaun: Gisting fyrir 2 á Hótel Búðum ásamt morgunverði.
3 verðlaun: Gjafabréf fyrir 2 á Veitingastaðinn UNO í Reykjavík
Vikulega vinnur besta liðið veglegan aukavinning
Það getur ekki verið auðveldara að taka þátt, farið inn á www.tippleikur.is veljið Breiðablik og skráið lið til leiks - Í hverju liði eru mest tveir en allar reglur er að finna á vefnum. Verð fyrir hvern hóp er 6.000 kr.
Einnig er hægt að líta við í getraunakaffi félagsins í Smáranum á laugardögum milli kl. 10-12 og skrá sig og fá allar upplýsingar og leiðbeiningar.