BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Viltu gera vel við þig og þína á heimaleikjum Breiðabliks í sumar

25.04.2016

Knattspyrnudeild Breiðabliks býður upp á þann möguleika að fólk geti keypt sér ljúffengan kvöldverð fyrir heimaleiki félagsins í sumar.

Þetta var rekið sem tilraunaverkefni í fyrra og var gerður mjög góður rómur að að stemmningunni sem myndaðist. Því hefur verið ákveðið að halda áfram með þetta verkefni.

Fyrsti leikurinn er gegn Víkingi Ólafsvík á sunnudaginn kl.19.15. Kvöldverðurinn hefst kl.18.00 og kostar 7 þúsund krónur á manninn. Innifalið í því er miði á leikinn og frátekin sæti í stúkunni.

Borðapantanir sendist á netfangið blikarvip@gmail.com

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka