BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Viking Classic Firmamótið í Fífunni um helgina

03.03.2016

Viking Classic Firmamótið 2016 verður haldið þann 5. mars klukkan 19:00 í Fífunni. Þáttökugjald er 25.000 þúsund krónur á hvert lið.

Leikreglur eru eftirfarandi:

- Spilað verður á 4 völlum í Fífunni.

- Liðunum verður skipt upp í fjóra riðla þar sem tvö lið komast upp úr hverjum riðli!

- 5 útileikmenn inn á í einu + markmaður

Einstaklingar sem spiluðu í Pepsí deildinni eða í 1. deildinni síðasta sumar eru því miður ekki gjaldgengir.

Verðlaun:

- Fyrsta sæti: Liði verður boðið í VIP stúku Breiðabliks fyrir leik í sumar í mat og drykk ásamt því að fá nóg af Viking Classic frá Vífilfelli

- Einnig eru verðlaun fyrir 2.-3 sæti, Viking Classic frá Vífilfelli

- Flottasta markið, besti sóknarmaður og besti varnarmaður fá einnig vegleg verðlaun

Beint eftir mót verður síðan verðlaunaafhending í sal á efri hæð Smárans ásamt því að veigar frá Vífilfelli verða seldar á sanngjörnu verði!

Nánari upplýsingar og skráning: firmamotbreidablik@gmail.com

Meistaraflokkur karla

Til baka