Viðtal við Ólaf Kristjánsson
03.06.2014Viðtal við Ólaf Kristjánsson
- „Stórveldi verða til með verkum en ekki orðum“
Nú hefur þú þjálfað karlalið Breiðabliks síðan 2006. Hvernig hefur tíminn hjá Breiðablik verið?
Frábær tími, heilt yfir. Auðvitað hæðir og lægðir en forréttindi að fá að koma inn og hafa möguleika á að byggja upp lið og klúbb með góðu fólki. Fann það best þegar ég þurfti að taka afstöðu til starfsins í Danmörku, hversu vel mér hefur liðið í Breiðabliki.
Hvað er eftirminnilegast?
Nærtækast að nefna fyrstu stóru titla Breiðabliks í karlafótbolta, Íslandsmeistaratitilinn 2010 og bikarinn 2009. En það verður líka eftirminnilegt að hafa fengið að taka þátt í að festa félagið í toppnum á íslenskum fótbolta, treysta grunnstoðirnar og móta skýran leikstíl menningu og hugarfar sem er komið til að vera
Hvað er það skemmtilegasta við að vera knattspyrnuþjálfari?
Það eru forréttindi að geta unnið við áhugamálið. Allt er skemmtilegt, þetta er spurning um viðhorf til hlutanna.
Var þetta erfið ákvörðun, þ.e. að hætta sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks?
Já, það var mjög erfið ákvörðun, ekki síst þar sem mér hefur liðið vel í félaginu, en það er dýrmætt að kveðja, í bili, á jákvæðum nótum
Ef knattspyrna væri ekki til, værir þú að þjálfa í einhverri annarri íþróttagrein?
Þá væri ég ekkert að þjálfa JÉg væri líklegast að þjálfa handbolta, en ég þjálfaði yngri flokka í FH í mörg ár. Byrjaði minn þjálfaraferil þar.
Ertu góður þjálfari?
Það er skilgreiningaratriði og aðrir verða að meta það.
Hvað er erfiðasta verkefni knattspyrnuþjálfarans?
Það er að velja “rétta” liðið hverju sinni, stærðfræðilega eru meiri líkur á að vinna í lottó en að finna “rétta” liðið, auk þess sem að það eru margar ólíkar skoðanir á því hvað sé hið rétta lið.
En að öllu gamni slepptu þá er svo margt í fótboltaleiknum sem þú veist ekki fyrr en leikurinn er spilaður og þess vegna er reynsla, öguð vinnubrögð og stefna svo mikilvæg. Það er ekkert eitt erfiðara en annað.
Er einhver þróun í gangi hvernig fótboltinn er spilaður í dag?
Já það er margt í gangi. Kannski þrjú atriði sem mér hafa fundist vera mest áberandi:
1. Hraði leiksins hefur aukist mikið síðustu ár. Leikmenn hafa minna pláss og minni tíma með boltann.
2. Leikmenn eru að verða fjölhæfari, geta skilað fleiri leikstöðum á vellinum. Það hangir saman með að víða eru menn að hverfa frá hefðbundnum föstum leikstöðum og eru farnir að sjá leikinn miðað við þær stöður í leiknum sem menn vilja fá upp, gætu komið upp, eða koma upp.
3. Lið eru orðin betri í að breyta áherslum milli leikja og jafnvel innan leikja. Það er ákveðinn leikstíll en ólíkar áherslur.
Hverjir eru helstu kostir þínir sem knattspyrnuþjálfari? En ókostir?
Læt aðra dæma um það.
Hversu miklu máli skiptir undirbúningur leikmanna fyrir leiki og af hverju?
Undirbúningur skiptir ALLTAF máli, í öllum tilvikum og leikmenn eru ekki undanskildir því. Undirbúningur stillir saman strengina og gerir leikmenn klára til að takast á við verkefnið sem framundan er, bæði það sem búast má við í leiknum og eins hið óvænta sem gæti komið upp.
Kan du snakke dansk?
Yes I can.
Hversu líklegt er að þú munir óvart öskra eitthvað á íslensku inn á völlinn?
Það er alls ekki ólíklegt að það fjúki einhverjar glósur einhvern tíma í hita leiksins.
Verðurðu með sömu laun og José Mourinho?
Veit ekki hvað hann er með í laun.
Hver er besti leikmaður heims í dag að þínu mati? Íslands?
Það er voðalega erfitt að svara hver er bestur, menn hafa svo ólík hlutverk. Mestur fókus er á þeim sem að hafa úrslitaáhrif í leikjum, en það er til fullt af leikmönnum sem eru mjög góðir og þýðingarmiklir í þeirra stöðu, án þess að vera áberandi. John Wooden svaraði þessu einhverju sinni á þann hátt að það væri ósanngjarnt að bera leikmenn saman með tilliti til þess hver væri bestur, menn hefðu svo ólíkar forsendur.
Einhver skilaboð að lokum?
Hvet alla til að leggja sitt af mörkunum til að styðja Breiðablik á komandi sumri og um ókomna framtíð. Stórveldi verða til með verkum en ekki orðum.