BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Uppskeruhátíð Breiðabliks í Smáranum

25.09.2013

Nú blása Blikar til veislu í Smáranum og halda alvöru Kópavogsball.

Hátíðarkvöldverður, skemmtiatriði, verðlaunaafhendingar og risadansleikur með engum öðrum en Páli Óskari og Buffinu fram á rauða nótt!

Veislustjóri verður Blikinn góðkunni Eiríkur Hjálmarsson.

Við kynnum einnig til leiks Blikann, bjór uppskerunnar 2013.

Mikilvægt að mæta snemma því að Páll Óskar byrjar á slaginu 22:00.

Mætum öll í Smárann og skemmtum okkur saman.

Miðaverð á kvöldverð og skemmtiatriði er haldið í lágmarki og er 4.900 en einnig er hægt að kaupa bara miða á 1.500.kr á ballið með sem byrjar klukkan 22:00 þegar að Páll Óskar stígur á svið.

Miðasala er á miði.is og í Smáranum í Kópavogi.

Nefndin

Til baka