Tveir erlendir leikmenn til prufu hjá Blikum
15.04.2015Belginn er framherji sem hefur m.a. verið á mála hjá belgíska 2. deildarliðinu Mons. Peter Gregory er öskufljótur kantmaður sem m.a. var um tíma með Hermanni Hreiðarssyni hjá Portsmouth. Síðast lék hann með Beira Mar í portúgölsku 2. deildinni. Þess má geta að Peter hefur hlaupið 100 metrana á 10,3 í sekúndum!
Það verður áhugavert að sjá hvort þessir leikmenn ná að heilla Adda og Kristó þjálfara. Tveir Spánverjar sem voru til prufu með Blikum á Spáni fengu til dæmis ekki samning eftir ferðina.
Lauren og Peter geta ekki spilað gegn Val á morgun í Lengjubikarnum því þeir eru ekki löglegir með Blikaliðinu. En sjálfsagt verða settir upp æfingaleikir til að skoða þá í alvöru leik.