Tímavélin: 1971 í ótrúlegum gæðum
11.01.2015Á fjörur blikar.is hefur rekið þessa skemmtilega liðsmynd frá árinu 1971. Á þeim tímum sem við lifum nú þykir sjálfsagt mál að hver einasta mynd sem tekin er sé aðgengileg í miklum gæðum en það er ekki alltaf staðan með þær eldri. Allra síst með 44 ára gamla mynd. Það vill svo skemmtilega til að þessa ágæta mynd var tekin á slides filmu og má nálgast hana hér í fullum gæðum.
Myndin er sannarlega tímanna tákn hvert sem litið er; allt frá skóbúnaðinum, knettinum, Vallargerðisvellinum eða óbyggðunum í bakgrunni.
Smellið hér til að skoða myndina í fullum gæðum.