Sigur á toppliði FC Midjylland
09.02.2014Blikaliðið gerði sér lítið fyrir og lagði efsta lið dönsku Úrvalsdeildarinnar Midtjylland 2:1 á The Atlantic Cup mótinu í Portúgal. Árni Vill kom okkur yfir í síðari hálfleik með fínu marki. Danirnir jöfnuðu leikinn en eftir góðan sprett kom Elfar Árni boltanum yfir línuna hjá Baununum. Það reyndist vera sigurmark leiksins því þrátt fyrir harða pressu Danana þá hélt vörnin allt til loka. Midtjylland tefldi ekki fram sínu stwerkasta liði en samt sem áður voru þarna nokkrir fastamenn í liðinu. Þetta er því fínn árangur hjá Blikaliðinu enda liðið alls ekki komið í sitt besta leikform.
Hrósa verður öllu Blikaliðinu fyrir góðan leik við frekar erfiðar aðstæður. Völlurinn var þungur og blautur eftir miklar rigningar í Portúgal að undanförnu. Stefán Gíslason kemur með öryggi í vörnina og þegar hann verður kominn í betri leikæfingu með liðinu þá á hann eftir að nýtast okkur vel. Halsman var grimmur í vörninni og kemur með baráttuanda. Finnur Orri og Andri Yoaman voru óþreytandi á miðjunni og ef þeir gætu bara skorað nokkur mörk þá væru þeir í fremstu röð á Íslandi. Árni Vill var ógnandi frammi og gæti gert enn betri hluti næsta sumar en hann gerði á síðasta tímabili. Þetta lítur því bara nokkuð vel út.
Næsti leikur Blikaliðsins er gegn FC Köbenhavn á mánudagskvöldið kl.19:45. Þá ætlar Blikaklúbburinn í samvinnu við All in Sportbar í Stakkahrauni 1 í Hafnarfirði að vera með samhristing. Tilboð verður mat á barnum og Sindri Þór Bliki tekur vel á móti okkur. Við hvetjum alla Blika til að mæta á mánudagskvöldið og eiga góða kvöldstund saman.
-AP