BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Stjarnan - Breiðablik í Fótbolti.net kl. 19:00 í Fífunni

20.01.2016

Minnum ykkur á nágrannaslag Stjörnunnar og Breiðabliks í A-deild Fótbolti.net mótinu klukkan 19:00 í Fífunni í kvöld. Þetta er breyting á leiktíma því upphaflega átti leikurinn að fara fram í Kórnum þriðjudaginn 26. janúar. Leikurinn verður í beinni á Sport TV. 

Þetta verður þriðja viðureign liðanna í Fótabolta.net mótinu frá upphafi. Báðir hinir leikirnir voru úrslitaleikir mótsins sem Blikar sigruðu: 1-2 í Kórnum 3. febrúar 2015 (sjá mörkin) og 3-2 í Kórnum 14. febrúar 2012. Allir leikir liðanna frá upphafi

Búast má við hörkuleik enda hafa Garðbæingar styrkt sig töluvert frá síðasta sumri. Vonandi geta Arnar og Kristó teflt fram sterku liði enda alltaf hart barist þegar þessi tvö lið mætast.

Áfram Breiðablik!

Til baka