BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Stefán Gíslason skrifar undir 3ja ára samning við Breiðablik

31.01.2014

Varnarmaðurinn Stefán Gíslason hefur skrifað undir þriggja ára samning við Breiðablik.

Stefán, sem verður 34 ára gamall á árinu, á að baki 32 landsleiki fyrir Íslands hönd.Sjá yfirlit yfir alla landsleiki Stefáns hér.

Hann hefur undanfarið ár leikið með OH Leuven í Belgíu en fékk sig lausan þar fyrir skemmstu til að halda heim á leið. Stefán, sem er uppalinn á Eskifirði, hefur áður leikið hér á landi í efstu deild en það var með KR og Keflavík. Sjá leikjaferil á Íslandi hér

Knattspyrnudeild Breiðabliks býður Stefán velkominn heim til Íslands aftur og væntir mikils af honum næstu árin.

Áfram Breiðablik!

Til baka