BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Skúli Sigurz lánaður til Leiknismanna

27.04.2017

Einn af hinum fjölmörgu ungu og efnilegu leikmönnum Breiðabliks, Skúli E. Kristjánsson Sigurz, hefur verið lánaður til Leiknis R.

Skúli sem er 18 ára gamall var valinn besti leikmaðurinn  í 2. flokksliði félagsins sem varð Íslandsmeistari með glæsibrag í fyrra.

Skúli sem er rétt tæplega 2 metrar á hæð er stór og sterkur örvfættur varnarmaður með góðan leikskilning og góða tækni. Þar að auki er hann með fína sendingargetu.

Blikar.is óskar Skúla velgengis með Leiknismönnum undir stórn Kristófers Sigurgeirssonar. Það verður gaman að sjá til þessa efnilega leikmanns í sumar. 

Til baka