- Silfurverðlaunin voru afhent eftir leik. Mynd: HVH
- Lokaundirnúningur að markinu. Kiddi Jóns að undirbúa sendingu á Atla Sigurjóns. Mynd: HVH
- Atli Sigurjónsson skilar knettinu örugglega í markið. Mynd: HVH
- Dómnefnd valdi Andra Rafn Yeoman mann leiksins. Mynd: HVH
- Þegar vörnin brást var Gulli sú hindrun sem þeir hvítklæddu náðu ekki að yfirvinna. Mynd: HVH
- Kópakabana voru mættir og reyndu að halda upp stemningu. Mynd: HVH
- Þetta var 11 leikurinn í sumar sem Blikar fá ekki á sig mark og í heild hefur liðið einungis fengið 13 mörk á síg í deildinni. Það er frábær árangur hjá Arnari Grétrassyni þjálfara. Sóknarleikurinn hefur hins vegar verið veikleiki í sumar en þrátt fyrir það er Blikaliðið í fjórða sæti yfir flest mörk skoruð. Mynd: HVH
Silfrið í höfn!
27.09.2015
Þrátt fyrir 1:0 sigur gegn ÍBV og silfurverðlaun á Íslandsmótinu í knattspyrnu árið 2015 var ljóst að leikmenn Blikaliðsins voru ekkert sérstaklega glaðir í leikslok. Ástæðan var sú að menn gældu við þá tilhugsun að FH myndi misstíga sig í leiknum gegn Fjölni og baráttan um titilinn yrði allt til loka mótsins. En í maíbyrjun hefðu menn svo sannarlega sagt já takk við Evrópusæti og silfri á Íslandsmótinu 2015. Við töpuðum hins vegar dýrmætum stigum gegn liðum í neðri hluta deildarinnar. Þar skyldi á milli okkar og FH-inga. Sumarið fer hins vegar í reynslubankann og við höfum alla burði til að berjast um titilinn næsta sumar.
Oliver var í leikbanni og Glenn mátti ekki spila gegn sínu gamla liði. Inn komu Guðjón Pétur og Ellert.
Liðið var því þannig skipað;
1. Gunnleifur Vignir Gunnleifsson (m)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson ('69)
8. Arnþór Ari Atlason ('91)
10. Guðjón Pétur Lýðsson
20. Atli Sigurjónsson
22. Ellert Hreinsson
23. Kristinn Jónsson
29. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
30. Andri Rafn Yeoman
Varamenn:
24. Aron Snær Friðriksson (m)
6. Kári Ársælsson
11. Olgeir Sigurgeirsson ('91)
21. Viktor Örn Margeirsson
28. Davíð Kristján Ólafsson
31. Guðmundur Friðriksson
33. Gísli Eyjólfsson ('69)
Leikskýrsla: Breiðablik - ÍBV 26.9.2015
BlikarTV: Lýsing
Kári gamli lét heldur betur finna fyrir sér í byrjun leiks. Sterk vestangolan náði allt að 18 m á sekúndu í fyrri hálfleik og rigningarskúrir skelltu sér af Esjunni niður í Kópavogsdalinn. En smám saman lægði og menn gátu farið að spila betri knattspyrnu.
Leikurinn við ÍBV fór rólega af stað þar sem við lékum gegn sterkri golu. Vestmannaeyingar voru hins vegar greinilega komnir til að ná í eitt stig og lágu aftarlega á vellinum. Við áttum nokkrar vænlegar sóknir upp kantana og náðum ágætum fyrirgjöfum. En það vantaði alla grimmd inn í teignum og við náðum ekki að nýta okkur þessi færi. Vestmanneyingar beittu skyndisóknum en varnarmenn okkar réðu vel við flesta tilburði þeirra. Þegar vörnin brást var Gulli sú hindrun sem þeir hvítklæddu náðu ekki að yfirvinna.
Veðrið lægði nokkuð í síðari hálfleik. Við náðum betri tökum á miðjunni og sóttum nokkrum sinnum vasklega upp til skiptis upp bakborðs- og stjórnborðsmegin. Eftir eina slíka sókn sendi Elfar Freyr þéttingsfast um 30 metra á Guðjón Pétur sem læddi knettinum niður á Kristinn Jóns sem var í einni af frægum rispum sínum upp kantinn. Hann lék inn í vítateig andstæðinganna og þeytti síðan tuðrunni þéttingsfast út í teiginn þar sem Atli Sigurjóns skilaði knettinu örugglega í markið.
Glöddust nú menn mjög í stúkunni og töldu flestir að Blikar myndu láta kné fylgja kviði. En Kópakabana og co varð því miður ekki að ósk sinni og í stað þess að sækja lögðust okkar piltar í háloftaspyrnur og varnarbaráttu. Sem betur fer var sóknarþungi gestanna ekki nægjanlega markviss og því tókst okkur að verja þetta eina mark.
Þetta var 11 leikurinn í sumar sem Blikar fá ekki á sig mark og í heild hefur liðið einungis fengið 13 mörk á síg í deildinni. Það er frábær árangur og til samanburðar hafa FH-ingar fengið 23 mörk á sig hingað til. Sóknarleikurinn hefur hins vegar verið veikleiki í sumar en þrátt fyrir það er Blikaliðið í fjórða sæti yfir flest mörk skoruð.
Blikaliðið hefur oft spilað betur en í þessum leik. Vörnin var traust en eins og stundum áður vantaði meiri brodd í sóknarleikinn. Sóknaruppbyggingin var of hæg og síðan datt liðið of mikið niður eftir að hafa náð forystunni. En stigin komu í hús og nú erum við aðeins einum leik frá því að bæta stigamet félagsins í eftstu deild.
Mæting áhorfenda var slök að þessu sinni. Auðvitað setti veðrið strik í reikninginn og óvissa með tímasetningu hafði líka áhrif. En Blikaliðið á betra skilið en þessa mætingu. Við skorum á menn að mæta í Grafarvoginn eftir viku til að sjá lokaleik liðsins á þessu keppnistímbili.
Svo ætla auðvitað allir að mæta á Pallaballið í Smáranum á laugardaginn til að fagna góðu sumri!
-AP