BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Samstarfssamningur knattspyrnudeildar Breiðabliks og Namo ehf endurnýjaður

22.12.2015

Í dag var undirritaður nýr þriggja ára samstarfssamningur milli Namo ehf og knattspyrnudeildar Breiðabliks. Allir flokkar knattspyrnudeildar munu því áfram leika í Jako búningum næstu þrjú árin. Þetta eru frábærarar fréttir fyrir alla aðila sem tengjast félaginu þar sem samstarfið við Namo hefur verið mjög farsælt á undanförnum árum.

Gera má ráð fyrir nýjum keppnisbúningum í lok febrúar eða í byrjun mars en það verður auglýst nánar síðar.

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Til baka