BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Öruggur sigur á varaliði Fylkis

22.02.2015

Blikar voru mun sterkari þegar varalið félaganna mættust í Fífunni á laugardagsmorguninn. Lokatölur voru 4:1 fyrir þá grænklæddu sem voru sterkari á öllum sviðum fótboltans. Greinilegt er að hópurinn er stærri hjá Blikum og meiri og betri gæði hjá okkur mönnum. Það voru þeir Viktor Margeirsson, Ernir Bjarnason,  Oliver Sigurjónsson, og Ismar ,,Izzy" Tandir sem settu mörk Blikaliðiðsins. 

Næsti leikur Blikaliðsins er gegn sterku liði KR á fimmtudaginn kl.18.00 í Fífunni. Þetta er æfingaleikur þannig að þar getum við teflt fram Ismar Tandir gegn öflugum varnarmönnum. Eftir þann leik verður sjálfsagt ákveðið hvort gengið verður til samninga við þennan stóra og sterka sóknarmann.

Byrjunarlið Blika var þannig;

Aron Snær, Kári, Viktor, Alfons, Ernir, Oliver, Páll Olgeir, Olgeir, Izzy, Guðjón Pétur, Elvar Páll.

Áfram Breiðablik!

Til baka