Minnum á leik Breiðabliks og Fjölnis í Pepsí-deild karla á sunnudaginn kl.19.15 á Kópavogsvelli!
16.05.2014
Við minnum á leik Breiðabliks og Fjölnis í Pepsí-deild karla á sunnudaginn kl.19.15 á Kópavogsvelli. Spáin er góð og völlurinn er allur að koma til.
Strákarnir okkar hafa æft vel undanfarna daga og eru staðráðnir í því að standa sig í leiknum gegn spútnikdrengjunum úr Grafarvogi.
Nú reynir á okkur stuðningsmennina að standa vel við bakið á strákunum.
Ekki hafa allir Blikaklúbbsmeðlimir sótt skírteini sín og verða fulltrúar klúbbsins staddir fyrir utan völlinn til að afhenda skírteinin þar fyrir leik.
Þess má geta að sú breyting verður gert á Blikakaffinu í leikhléi að það verður í tengibyggingunni á milli Fífunnar og Smárans. Það er gert til að rýmra verði um menn enda aðstaðan niðri í það minnsta fyrir allan hópinn. Ekki verður sérstök Stór-Blikastúka í ár og munu því allir meðlimir fara út í tengibygginguna.
Sjáumst á sunnudaginn,
Áfram Breiðablik!