BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Meistaraflokkur karla til Montecastillo á Spáni

27.03.2016
Meistaraflokkur karla heldur í nótt í æfingaferð til Montecastillo (Jerez) á Spáni. Gist verður á Barcelo Montecastillo Resort. Brottför frá Smáranum út á flugvöll er kl. 03.00 ef einhver vill kveðja strákana. Brottför (KEF) í beinu flugi til Jerez (XRY) er klukkan 06:00. Áætlað lending í Jerez er klukkan 12:40 að staðartíma. 
 
Strákarnir hafa undanfarin ár farið til þessa staðar stutt frá hafnarborginni Cadiz í suður og Seville í norður. Aðstæður til æfinga eru hinar bestu og hefur þessi ferð reynst ómetanleg í undirbúningsi fyrir Pepsi-deildina sem hefst í byrjun maí. 
 
Ekki er enn vitað hvort spilaðir verði einhverjir æfingaleikirí ferðinni en þó er vitað að æft verður stíft alla dagana. 
 
Fulltrúar Blikar.is verða með í för og munu senda daglegar upplýsingar gegnum miðlana sem áhugasamir Blikar eru í auknum mæli farnir að nota til að fylgjast með Blikaliðinu. 
 
Heisi @ BlikarTV er að venju með eitthvað á prjónunum gaman verður að fylgjast með.
 
Áfram Blikar, alltaf, alls staðar – líka á Spáni!

Til baka