BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Leikur Keflavíkur og Breiðabliks í 3. umferð Pepsi-deildar karla er dag kl.19.15 í Reykjanesbæ.

12.05.2014
Leikur Keflavíkur og Breiðabliks í 3. umferð Pepsi-deildar karla er í kvöld kl.19.15 í Reykjanesbæ. 
 
Byrjunin hjá okkar piltum hefur ekki alveg verið eins og við vonuðum en strákarnir okkar eru staðráðnir í því að standa sig á erfiðum útivelli í kvöld.
 
Ekki er ólíklegt að Óli þjálfari geri einhverjar breytingar á byrjunarliðinu enda hópurinn stór og öflugur.
 
Ef við náum upp okkar fljóta og hraða spili er ekki spurning að þetta verður skemmtilegur leikur.
 
Cócacapana stuðningshópur Blika hefur staðið sig með eindæmum vel í undanförnum leikjum og ætlar að fjölmenna suður með sjó.
 
Við hvetjum alla Blika til að klæða sig upp og mæta í Bítlabæinn til að hvetja þá grænklæddu til sigurs.
 
Áfram Breiðablik!

Til baka