Leikmenn Breiðabliks á ferð og flugi
29.10.2013Breiðabliks leikmennirnir Árni Vilhjálmsson og Andri Rafn Yeoman munu á laugardaginn halda til æfinga hjá Legia Varsjá í Póllandi og verða þar til reynslu frá 2.-14. nóvember næstkomandi.
Með þeim í för verður einnig varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason en hann mun skoða aðstæður hjá félaginu án þess þó að æfa með þeim.
Sverrir heldur síðan til Hollands en þar um hann æfa með Heerenveen, eins og áður hefur komið fram, frá 7.-21. nóvember en þessir efnilegu leikmenn Breiðabliks hafa vakið verskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína á þessu ári.
Knattspyrnudeild Breiðabliks