Kynning: Blikaklúbburinn
28.04.2016Blikaklúbbur karla var stofnaður haustið 1993. Tilgangur hans er að styðja við bakið á meistaraflokki karla og kvenna meðal annars með því að standa fyrir öflugu stuðningsliði.
Félagsmenn í klúbbnum fá aðgangskort á alla heimaleiki meistaraflokka félagsins í Pepsí deildinni. Félagsmönnum er boðið að taka þátt í uppákomum fyrir leiki og þiggja veitingar í leikhléi.
Blikaklúbburinn stendur fyrir hópferðum á þá útileiki sem eru utan höfuðborgarsvæðisins.
Blikaklúbburinn er kjörinn vettvangur fyrir foreldra að styðja við áhugamál barna sinna og mæta á völlinn til að hvetja áfram Breiðablik og eiga saman góða fjölskyldustund í góðra vina hópi.
Hafa má samband við gjaldkera Blikaklúbbsins til að gerast félagi - Smella hér til að fá nánari upplýsingar.
Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!
Blikaklúbburinn