Kristján Flóki til Blika!
17.03.2015Einn af efnilegri leikmönnum Íslands, Kristján Flóki Finnbogason, hefur ákveðið að spila með Blikaliðinu í sumar. Hann var að skrifa undir 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Kristján Flóki, sem er uppalinn FH-ingur, hefur að undanförnu verið að mála hjá danska stórliðinu FC Köbenhavn. Kristján Flóki er af hinum sterka 1995 árgangi og er því tvítugur að aldri. Hann er öflugur framherji sem hefur leikið 31 landsleik með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim 8 mörk.
Knattspyrnudeild Breiðabliks fagnar komu þessa efnilega leikmanna og bindur miklar vonir við að hann smelli vel inn í híð léttleikandi Blikalið í sumar.
-AP