BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

KR - Breiðablik í PEPSI mánudaginn 19. júní kl. 20:00

16.06.2017

KR - Breiðablik í PEPSI á Alvongenvellinum í vesturbæ Reykjavíkur á mánudaginn 19. júní kl. 20:00!

Fyrsta viðureign Breiðabliks og KR í efstu deild var á Melavellinum árið 1971, í leik sem Blikar unnu 1-0 með marki frá Haraldi Erlendssyni. Leikið var á Melavellinum sem var heimavöllur Breiðabliks frá 1971 þar til að Kópavogsvöllur var vígður 7. júní 1975

Breiðablik og KR hafa mæst 82 sinnum í opinberum leikjum frá upphafi. KR hefur vinninginn með 40 sigra gegn 19 sigrum Blika. Jafnteflin eru 24. Skoruð mörk í þessum leikjum eru 209 eða 2.6 mark per leik. 

Deilarleikir liðanan frá upphafi eru 60 - allir í efstu deild. KR hefur vinninginn með 27 sigra gegn 14 og jafnteflin eru 19

Í 22 leikjum í efstu deild frá 2006, árið sem Breiðablik kom aftur upp í efstu deild eftir nokkra veru 1. deild, er niðurstaðan hníf-jöfn (S7-J8-T7) sem skiptist svona á milli heimavalla: Á Kópavogsvelli 11 leikir (S4-J3-T4). Í Frostaskjólinu (S3-J5-T3).

Sex ár eru liðin síðan Blikar töpuðu síðast deildarleik í Frostaskjólinu. Í þeim leik vann KR öruggan 4-0 sigur í 12. umferð í júlí 2011. Blikar kvittuðu svo fyrir það tap árið eftir í sögufrægum 0-4 sigri í 19. umferð í september 2012. Leikir liðanna í Skjólinu síðan þá hafa allir endað með jafnteli; 2013: 1-1. 2014: 1-1, 2015: 0-0, 2016: 1-1.

Sjáumst öll á Alvogenvellinum á mánudagskvöld kl. 20:00 og hvetjum okkar menn til sigurs.

Búast má við fjölmenni á völlinn kvöld þannig að við hvetjum fólk til að mæta tímanlega.

Glæsileg veðurspá.

Leikurinn hefst 20:00!

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka