Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að gamli Blikinn, skáldið, blúsgeggjarinn og söngvarinn Kormákur Bragason ætlar að heiðra okkur á sunnudag með spileríi og söng.
Eins og eldri Blikar muna þá spilaði Kormákur með Blikaliðinu á árunum 1974-1977 og gat sér síðan gott orð sem vísnaskáld og meðlimur hinnar frægu Ólafsfjarðarsveitar með kópavogsívafi ,,South River Band”. Einnig hefur Kormákur haldið úti gleðisveitinni ,,Gæðablóð”. En sjón er sögu ríkari og það verður engin svikinn af því að hlusta Kormál spila og syngja. Hann mun troða upp eftir að Helgi Seljan opnar nýtt útlit á heimasíðunni okkar http://www.blikar.is