BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

KFG-Breiðablik í 32-liða úrslitum Lengjubikarsins í Garðabæ kl.19.15 -ókeypis inn í boði Frumherja!

04.06.2015

Við minnum ykkur á leik KFG (Knattspyrnufélags Garðabæjar) og Blika í 32-liða úrslitum Lengjubikars karla í kvöld.

Leikurinn fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ kl.19.15. Liðin hafa náð samkomulagi við Frumherja að fyrirtækið verði styrktaraðili leiksins.

Því geta áhorfendur mætt á leikinn í kvöld án endurgjalds og geta notað peninginn í kaupa meira popp og kók á vellinum!

Ekki má vanmeta Garðbæingana þótt þeir spili í 4. deild. Margir snjallir knattspyrnumenn spila með liðinu og ekki má gleyma því að þjálfari þeirra er

Salih Heimir Porca, fyrrum leikmaður og þjálfari hjá okkur Blikum.

Búast má við að þjálfararnir okkar, Arnar og Kristófer, geri einhverjar breytingar á byrjunarliði Blika frá síðustu leikjum þannig að við fáum að sjá ný andlit inn á vellinum í kvöld.

Nú fá þeir leikmenn tækifæri til sýna sig og sanna!

Við hvetjum alla til að mæta ÓKEYPIS  í Garðabæinn í kvöld og sjá skemmtilegan knattspyrnuleik á teppinu á Samsungvellinum!

Til baka