Íslands-Kazakstan á Kópavogsvelli kl.16.00 í dag
09.09.2013Þrátt fyrir að flestra augu beinist að leik A-landsliðs okkar gegn Albaníu á Laugardalsvelli kl.19.00 þá má ekki gleyma því að hið frábæra U-21 árs landslið okkar spilar gegn Kazakstan á Kópavogsvelli kl.16.00.
Blikar eiga þrjá menn í þessum hópi; Sverri Inga Ingason, Andra Rafn Yoeman og Tómas Óla Garðarsson.
Liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína og er efst í riðlinum.
Við hvetjum alla knattspyrnuáhugamenn til að mæta í Kópavoginn og styðja þetta frábæra lið Íslands til sigurs. Fara síðan á Laugardalsvöllinn og hrópa sig hásan ,,Áfram Ísland“!
Blikaklúbburinn