BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

HK og Breiðablik mætast í styrktarleik fyrir Bjarka Má Sigvaldsson

01.04.2014

Meistaraflokkar HK og Breiðabliks í knattspyrnu hafa ákveðið að taka höndum saman og spila leik fimmtudaginn 3. apríl kl. 19.00 í Kórnum

Um er að ræða styrktarleik þar sem allur aðgangseyrir og allar tekjur renna til Bjarka Más Sigvaldasonar og fjölskyldu hans. Bjarki hefur undanfarin ár háð erfiða baráttu við krabbamein sem hefur tekið gríðarmikinn toll.

Kópavogsfélögin vilja sýna stuðning í verki með þessum leik og vonast til þess að Kópavogsbúar og aðrir komi í Kórinn og styrki Bjarka og fjölskyldu hans.

Auk leiksins verða hinar frábæru SamSam systur með tónlistaratriði í hálfleik í hálfleik og veitingasala. Áhorfendur ráða hvaða upphæð þeir greiða í aðgangseyri, semsagt frjáls framlög.

Þeir sem komast ekki á leikinn geta lagt sitt af mörkum með því að leggja inná rn. 536-14-400171 kt.630981-0269 sem er styrktareikningurinn.

Til baka