BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Hermann lánaður í Hamar

13.05.2015

Sóknarmaðurinn kraftmikli Hermann Ármannsson hefur verið lánaður austur fyrir fjall og spilar með Hamri í Hveragerði í sumar.

Hermann sem er tvítugur að aldri hefur átt við veikindi að stríða í vetur en er nú óðum að ná sér. Hann var mikill markaskorari í yngri flokkunum og var m.a. markahæsti maður 2. flokksins árið 2013.

Hermann er félagslega sterkur einstaklingur sem hefur tekið virkan þátt í starfinu með meistaraflokknum í vetur þannig að hans verður saknað á þeim vettvangi.

En Blikar.is senda Hermanni baráttukveðjur og við vonum að sjálfsögðu að hann hrelli markverði í allt sumar!

Til baka