Haukar lagðir í Fífunni
29.11.2014
Blikaliðið lagði KFUM-drengina úr Hafnarfirði 2:1 í ágætis leik í Fífunni í dag. Það voru þeir Gunnlaugur Birgisson og Arnþór Ari Atlason sem settu mörk okkar liðs í sitt hvorum hálfleiknum. Þetta voru fyrstu mörk þeirra beggja fyrir meistaraflokk Breiðabliks en alveg örugglega ekki þau seinustu!
Blikar voru mun sterkari í leiknum þrátt fyrir að nota 22 leikmenn í þessum leik.
Leikurinn byrjaði ekki nógu vel því Haukur skoruðu strax á 10 mínútu leiksins. En fljótlega tóku Blikar öll völd á vellinum drifnir áfram af góðum leik Olivers Sigurjónssonar á miðjunni.
Þegar rúmur hálftími var liðinn átti Ósvald Traustason flotta sendingu inn í vítateiga gestanna. Þar var trukkurinn Ellert Hreinsson mættur og tókst honum með harðfylgi að koma knettinum á Gunnlaug sem átti ekki í erfiðleikum með að skora sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokkinn.
Í síðari hálfleik skipti Arnar þjálfari nánast öllu byrjunarliðinu út af. Inn á komu ungir og efnilegir leikmenn í bland við reynda leikmenn eins og Kára Ársælsson og Olgeir Sigurgeirsson. Þessir drengir sýndu fína takta og áttu þeir rauðklæddu mjög lítið í leiknum þrátt fyrir ágæta baráttu. Að vísu voru varnarmenn okkar aðeins kærulausir í 2-3 skipti en tókst samt að koma í veg fyrir mark.
Arnþór Ari setti síðan ágætt mark um miðjan hálfleikinn og þrátt fyrir nokkur ágæt færi í viðbót urðu 2:1 lokatölur leiksins.
Blikaliðið getur verið þokklega ánægt með leikinn. Margir leikmenn fengu að spreyta sig og ljóst er að valið á milli allra þessar leikmanna verður erfitt! Eldri og reyndari leikmenn geta ekki gengið að stöðum sínum vísum því ungir piltar eins og Gísli Eyjólfsson, Óskar Jónsson, Ernir Bjarnason, Alfons Sampsted og Sólon Leifsson sýndu góða takta.
Þetta var fyrsti sigurleikur Arnars Grétarssonar sem þjálfari með Blikaliðið. Einnig var þetta fyrsti meistaraflokksleikurinn hjá Óskari, Alfonsi og Sóloni. Við óskum þessum öllum til hamingju með áfangann.
Marga máttarstólpa vantaði í Blikaliðið i þessum leik. Gunnleifur markvörður hvíldi og Guðjón Pétur, Elvar Páll, Elvar Árni og Kristinn Jónsson eiga við smávægileg meiðsli að stríða.
Næsti leikur Blikaliðsins er gegn Fimleikafélagi Hafnarfjarðar næsta laugardag kl.10.30 í Fífunni. Við hvetjum alla til að mæta og sjá þetta unga og efnilega Blikalið spila.
-AP