Haukar lagðir 3:1
21.11.2015
Blikar unnu Hauka 3:1 í æfingaleik í Fífunni í morgun. Blikar notuðu 22 leikmenn í leiknum en unnu samt nokkuð öruggan sigur á Hafnarfjarðarliðinu. Það voru þeir Andri Rafn, Ágúst Hlynsson (ungur leikmaður úr 3. flokki) og Gísli (vítaspyrna) sem settu okkar mörk. Aron Snær markvörður var hins vegar hetja liðsins þegar hann varði vítaspyrnu þeirra rauðklæddu í stöðunni 2:1 í síðari hálfleik.
Blikar stjórnuðu leiknum í fyrri hálfleik en voru ekki að skapa sér neitt sérstaklega mörg marktækifæri. Eina mark fyrri háfleiks gerði Andri Rafn með góðu skoti utan vítateigs eftir snarpa sókn og samspil Höskuldar og Ósvalds vinstra megin.
Arnar og Kristófer settu algjörlega nýtt lið inn á síðari hálfleik og þar fengu m.a. Óskar Jónsson og Ágúst Hlynssonar eldskírn sína með meistaraflokki. Þeir stóðu sig báðir með miklum sóma. En mestu um munaði frammistöðu Arons Snæs sem varði vítaspyrnuna eins og áður sagði.
Liðið í fyrri hálfleik var þannig skipað:
Hlynur,
Ósvald, Damir, Viktor Örn, Gummi Friðriks
Ernir, Gunnlaugur Hlynur, Andri Rafn, Ólafur Hrafn,
Höskuldur, Arnór Gauti
Liðið í síðari hálfleik var þannig skipað;
Aron Snær,
Alfons, Elfar Freyr, Kári, Andri Sig (árg.94 var hjá Ægi í fyrra)
Gísli, Arnþór Ari, Óskar, Atli, Ágúst Hlynsson
Sólon
Næsti leikur liðsins er gegn KR í hinu svokallaða BOSE móti á fimmtudaginn í Egilshöll klukkan 20:00.
-AP