BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Fyrrum leikmaður Real Madrid spilar með Blikum gegn Víkingum

04.12.2015
Blikar spila seinni leik sinn í BOSE-mótinu á móti Víkingum á morgun laugardag kl.11.00 í Fífunni. Spánverjinn Sergio Carrallo Pendás mun leika með Blikum í þessu leik en hann er nú til prufu hjá okkur. Sergio sem er 21 árs  var áður á mála hjá unglinga- og varaliði Real Madrid. Hann er fljótur örvfættur miðju- og kantmaður. 
 
Við hvetjum alla til að mæta til að sjá Blikaliðið spila. Jonathan Glenn er ekki enn kominn til landsins þannig að þá fá aðrir tækifæri til að sanna sig í sóknarleiknum.
 
Leikurinn er í beinni á SportTV klukkan 11:00
 
Áfram Breiðablik!

Til baka