Fylkir-Blikar í Lengjubikarnum í kvöld kl.19.00 - einnig leikur á morgun kl.10.30 við Fylki.
20.02.2015Fylkir-Blikar í Lengjubikarnum í kvöld kl.19.00 - einnig leikur á morgun kl.10.30 við Fylki
Fyrsti leikur strákanna okkar í meistaraflokknum í Lengjubikarnum á þessu tímabili er í kvöld í Egilshöllinni gegn Fylki kl.19.00.
Fylkismenn unnu ÍBV örugglega í fyrsta leik en okkar leik gegn Víkingum Ó var frestað.
Á morgun laugardag kl.10.30 spilar síðan varalið okkar gegn varaliði Fylkis í Fifunni. Þar munu menn geta barið bosníska U-21árs landsliðsmanninn Ismar Tandir augum en hann er ekki löglegur með Blikaliðinu og má því ekki spila í Lengjubikarnum.
Ismar sem er fæddur árið 1995 er 196 cm hár framherji. Ismar, gjarnan kallaður "Izzy", er fæddur í Þýskalandi en ólst upp í Bandaríkjunum. Hann hefur meðal annars verið á mála hjá yngri liðum Red Bull í Bandaríkjunum og varaliði Sochoux í Frakklandi.
Sjón er sögu ríkari, mætum og hvetjum Blikaliðin til sigurs!