BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Fréttatilkynning

25.03.2015
Vegna fréttaflutnings um félagaskipti Kristjáns Flóka Finnbogasonar er rétt að eftirfarandi komi fram:
 
Þann 16. mars 2015 gengu Breiðablik og FC Köbenhavn frá samningi um félagskipti Kristjáns Flóka í gegnum umboðsskrifstofu leikmannsins.
 
Samdægurs samþykkti Kristján Flóki samninginn munnlega og var það staðfest í tölvupóstsamskiptum og á fundi milli félagsins og umboðsskrifstofu hans að hann myndi ganga í raðir Breiðabliks. 
 
Þegar það lá fyrir samþykktu allir hlutaðeigandi að standa sameiginlega að fréttatilkynningu þar sem tilkynnt yrði um félagskipti Kristjáns Flóka í Breiðablik í fjölmiðlum.
 
Ákveðið  var að undirrita skriflegan samning síðar þann sama dag, en leikmaðurinn var þá staddur í Danmörku. Úr því varð þó ekki þar sem Kristjáni Flóka snérist hugur og ákvað hann í framhaldinu að gerast leikmaður FH. 
 
Kristjáni Flóka þykir leitt að hafa skipt um skoðun og biður forsvarsmenn, starfsfólk og stuðningsmenn Breiðabliks innilega afsökunar á þessum málalokum og óskar þeim góðs gengis á knattspyrnuvellinum í sumar. 
 
Með yfirlýsingu þessari telst máli þessu lokið og munu málsaðilar ekki tjá sig frekar um það við fjölmiðla. 
 
 
Virðingarfyllst,
Borghildur Sigurðardóttir, formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks
Magnús Agnar Magnússon, meðeigandi Totalfootball
Kristján Flóki Finnbogason

Til baka