BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Frábæru Símamóti lokið

22.07.2014

Á sunnudag lauk 30. Símamóti Breiðabliks. Mótið í ár heppnaðist einstaklega vel þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi verið að stríða okkur framan af. Það er samdóma álit allra sem að mótinu komu hvort sem það voru þátttakendur, foreldrar eða önnur skyldmenni eða bara gestir og gangandi að öll skipulagning og framkvæmd hafi verið alveg til sóma og hvergi hafi borið skugga á. Hamingjuóskum hefur rignt yfir félagið og það er á þessum tíma ársins sem maður er hvað stoltastur af því að vera Bliki. Að sjá samtakamáttinn sem félagið okkar hefur yfir að búa er alveg frábært og alltaf var gleðin í fyrirrúmi. Ég vil fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar óska öllum sem komu að framkvæmd og skipulagningu á mótinu innilega til hamingju með frábærlega framkvæmt verkefni. Mótstjórnin okkar þau Einar Sigurðsson, Tryggvi Hafstein, Nils Gústafson,Ólaf Hrafn Ólafsson,Helga Jónsdóttir, Bergsveinn Samsted, Páll Liljar Guðmundsson og Snorri Páll Einarsson fær sérstakar þakkir fyrir allt sitt óeigingjarna starf.

Fyrir hönd knattspyrnudeildar

Borghildur Sigurðardóttir

Formaður

Til baka