BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Formannsskipti í Blikaklúbbnum

21.04.2014
Aðalfundur Blikaklúbbsins var haldinn í nýju stúkunni á Kópavogsvelli miðvikudaginn 9. apríl. Þar bar helst til tíðinda að skipt var um formann í klúbbnum. Andrés Pétursson, sem hefur verið formaður klúbbsins undanfarin 16 ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Í hans stað var kosinn formaður Elfar Tjörfi Steinason.
 
Sérstakir gestir fundarins voru leikmenn meistaraflokks karla og kvenna. Fyrir hönd meistaraflokks kvenna sögu þær Fjolla Shalla og Ragna Einarsdóttir frá vel heppnaðri æfingaferð til Spánar. Þær kváðust bjartsýnar á góðan árangur Blikaliðsins enda lofaðu úrslit í leikjum vetrarins góðu. Einnig talaði Hlynur Eiríksson þjálfari og sagði frá upbyggingu undanarinna ára. Meðalaldur liðsins væri að vísu lágur en gæði leikmanna mikil. 
 
Guðjón Pétur Lýðsson og Gísli Eyjólfsson leikmenn meistaraflokks karla sögðu frá undirbúningingi og væntingum fyrir komandi tímabil. Æfingar hafa verið mjög stífar og þ.a.l. vonir um að það muni skila sér í góðum árangri á tímabilinu. Fjölmargar spurningar komu frá fundarmönnum og var þeim öllum greiðlega svarað.
 
Andrés Pétursson formaður Blikaklúbbsins til sextán ára baðst undan endurkjöri, en einnig gáfu Íris, Friðjón, Ingibjörg og Jóhannes ekki kost á sér til endurkjörs, en auk þess hafði Björn Hilmarsson gjaldkeri til margra ára látið af störfum á árinu og flutt til Ólafsvíkur.
 
Ný stjórn var kjörin og hana skipa: Elvar Tjörfi Steinason formaður, Andrés Pétursson, Ólafur Ásgeir Jónsson, Friðjón Hermannsson, Hlífar Sigurbjörn Rúnarsson, Ólafur Sigtryggsson, Birgir Ólafsson, Böðvar Bjarki Pétursson og  Örn Örlygsson.
 
Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks kvaddi sér hljóðs og þakkaði Andrési fyrir mikið og frábært starf fyrir Blikaklúbbinn og tóku fundarmenn undir með lófaklappi.
 
Áfram Breiðablik!

Til baka