“Fjölskyldumyndataka” í Fífunni.
18.12.2013
Miðvikudaginn 18. desember kl. 17.00 mun fara fram "fjölskyldumyndataka" í Fífunni.
Þar verður tekin hópmynd af öllu því frábæra fólki sem skipar stærstu knattspyrnudeild landsins.
Eftirfarandi eiga að mæta:Meistaraflokkar, eldri flokkar og yngri flokkar karla og kvenna - Öll í grænum keppnisbúning! Allir þjálfarar knattspyrnudeildar í þjálfarafatnaði. Stjórnir og starfsfólk knattspyrnudeildar. Foreldrar, sjálfboðaliðar og stuðningsmenn.
Myndin verður notuð í kynningarefni, þar á meðal verður hún hengd upp við innganginn í Fífunni. Boðskapurinn er að saman myndum við sterka og öfluga heild.
Við hlökkum til að sjá ykkur á miðvikudaginn. Mæting kl. 17.00. Gert er ráð fyrir að þessu sé lokið um kl. 17.30.
Fólki er bent á að bílastæði eru við Sporthúsið og sunnan megin við Fífuna. Þeim sem geta komið fótgangandi er bent á þann kost. Hægt er að geyma föt á hlaupabraut austan megin við völlinn. Helgi Viðar hirðljósmyndari Breiðabliks mun taka myndina ofan af svölunum í Fífunni og Heisi á röltinu leikstýrir af alkunnri snilld.
Starfsfólk knattspyrnudeildar Breiðabliks