BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Finnur Orri leitar á önnur mið

23.10.2014
Finnur Orri Margeirsson hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks. Hann hefur ákveðið að leita á önnur mið og mun það skýrast fljótlega hvar hann mun spila næsta sumar.  Ástæður þess að  Finnur Orri spilar ekki með okkur næsta sumar eru fyrst og fremst knattspyrnulegar. Ljóst er að við Blikar munum sakna Finns Orra enda hefur hann verið lykilmaður í  liðinu undanfarin ár. En það kemur alltaf maður í manns stað og við Blikar eigum mikið af ungum og efnilegum leikmönnum.  Þeir fá því tækifæri að sanna sig fyrir næsta sumar hjá nýja þjálfarateyminu, Arnari Grétarssyni og Kristóferi Sigurgeirssyni.
 
Blikar.is kveður Finn Orra með söknuði og óskar honum velfarnaðar á nýjum heimavelli. En við erum þess fullvissir að við eigum eftir að sjá leikmanninn aftur í græna búningnum innan fárra ára.
 
-AP

Til baka