Enski boltinn er algjört drasl
28.11.2014
..miðað við veisluna sem nú fer í hönd og verður í Fífunni næstu 3 laugardaga. Það byrjar á morgun þegar okkar menn taka á móti Haukum. Sá leikur hefst klukkan 10:30. Svo koma FH ingar í heimsókn laugardaginn 6. desember og hefst sá leikur klukkan 10:30. Síðastur í þríleiknum er svo leikur Blika gegn Fjölni laugardaginn 13. desember og hann hefst einnig klukkan 10:30.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig menn koma til með að spjara sig í þessum leikjum og ekki síður hvað Addi og Kristó leggja upp með. Ennfremur mun Finnur Orri mæta sínum fyrri félögum í fyrsta sinn í Fífunni. Hvað eru mörg eff í því?
Allir leikirnir eru í Dolby surround ™ og Cinemascope™.
Semsagt allt að gerast og heitt á könnunni í getraunakaffinu, eins og alltaf á laugardögum.
Áfram Breiðablik!
OWK.