BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Elfar Árni Aðalsteinsson til KA

14.02.2015

Knattspyrnudeildir Breiðabliks og KA hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Elfars Árna Aðalsteinssonar úr Breiðablik og yfir í KA.

Elfar Árni sem er 25 ára gamall framherji kom til Breiðabliks frá Völsungi Húsavík í upphafi árs 2012.

Elfar Árni lék 104 leiki fyrir Breiðablik í deild og bikar og skoraði í þeim 27 mörk.

Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Elfari Árna kærlega fyrir hans framlag til félagsins en auk þess að vera leikmaður hjá félaginu hefur hann séð um þjálfun ungra og efnilegra leikmanna í yngri flokkum félagsins.

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Til baka