BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Einstefna gegn ÍBV

18.01.2020

Blikar unnu öruggan 2:0 sigur gegn ÍBV í Fotbolta.net mótinu á köldum en fallegum vetrardegi á Kópavogsvelli í dag. Leikurinn var okkar frá fyrstu mínútu og áttu gestirnir ekki roð við fríska Blika í leiknum. Það voru þeir Brynjólfur Darri og Gísli Eyjólfs sem settu mörk okkar pilta með stuttu millibili undir lok fyrri hálfleiks.

Úrslit.net 

Blikaliðið spilaði að vanda með markvörðin Anton Ara framarlega og hafsentana í léttum reitabolta aftarlega á vellinum. Þrátt fyrir að gestirnir reyndu að pressa okkur ofarlega á vellinum þá leystu okkar drengir það auðveldlega. Greinilegt að Blikaliðið er að ná ágætis tökum á þessu leikkerfi.

Greinilegt var að yfirburðir þeirra grænklæddu fór í taugarnar á Vestmanneyingum. Þeir brutu oft illa á okkar mönnum og hefði dómarinn mátt að ósekju vera duglegri að dæma á þessi ljótu brot. Einkum varð Brynjólfur Darri oft fyrir barðinu á þeim og þurfi að lokum að fara af velli vegna fólskulegrar tæklingar.

Oliver Sigurjónsson kom inn á í síðari hálfleik og var ánægjulegt að sjá hann aftur í Blikatreyjunni. Þrátt fyrir að hann hafi ekki spilað alvöru knattspyrnuleik í töluverðan tíma sást vel glitta í gömlu Olivertstaktana. Það verður enn betra að hafa hann í liðinu þegar leikformið verður orðið betra.

Eina sem hægt er kvarta undan er að Blikaliðið hafi ekki skorað fleiri í mörk í dag. Yfirburðirnir úti á vellinum voru miklir en það vantaði aðeins meiri brodd í sóknarleikinn. Sérstaklega í síðari hálfleik þegar Brynjólfur Darri var farinn út af. En nú fer Thomas að koma til landsins og þá eykst breiddin enn í hópnum.

Næsti leikur liðsins er gegn FH næstkomandi laugardag 25. janúar kl.10.45 í Skessunni við Kaplakrika. Blikum nægir jafntefli í þeim leik til að komast í úrslit á mótinu. En það er ljóst að okkar piltar ætla ekki í Hafnarfjörðinn fyrir minna en 3 stig!

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar.

-AP

Umfjallanir netmiðla.

BlikarTV var á staðnum. Hér eru  brot úr leiknum. 

Til baka