BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Daninn Nichlas Rohde á leið til Blika

25.07.2012

Samkvæmt upplýsingum sem stuðningsmannavef knattspyrnudeildar Breiðabliks var að berast mun Nichlas Rohde framherji frá FC Nordsjælland í Danmörku koma til okkar á láni út þetta keppnistímabil. Rohde kom til landsins í síðustu viku og skoðaði aðstæður hjá okkur og æfði með strákunum.

Og sóknarmaðurinn Ben J Everson sem kom til okkar frá Tindastóli í síðusti viku er byrjaður að æfa á fullu og verður klár í slaginn fyrir leik okkar gegn ÍBV á sunnudaginn kemur.

Maximilian Knuth þýskur miðjumaður sem hafði verið til reynslu hjá okkur fékk ekki samningstilboð. Knuth sem er fæddur árið 1989 og er miðjumaður var hugsaður sem sóknartengiliður en hann heillaði ekki

Áfram Breiðablik!

Til baka