BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik – Víkingur R í PEPSI mánudag 14. ágúst kl. 18:00

11.08.2017

Liðin eiga 76 leiki að baki í öllum mótsleikjum inni og úti frá upphafsári knattspyrnudeildar Breiðabliks árið 1957. Tölfræðin í leikjunum er hnífjöfn. Bæði lið hafa unnið 28 sigra og jafnteflin eru 20.

Í efstu deild eru innbyrgðis leikir liðanna 37. Víkingar hafa yfirhöndina með 13 sigra gegn 11 Blikasigrum, jafnteflin eru 13.

Lið Breiðabliks og Víkings R. hafa mæst 13 sinnum í efstu deild frá árinu 2000. Jafnt er á öllum tölum því Víkingur hefur sigrað í 4 leikjum, Blikasigrar eru 5 og jafnteflin eru 4. Skoruð mörk eru 47 enda leikir liðanna í efstu deild frá árinu 2000 oft miklir markaleikir. Úrslit eins og t.d. 2-6, 2-2, 4-1, 3-1 er oftar en ekki niðurstaðan á árunum 2000-2017. Til dæmis var fyrri leikur liðanna í sumar var 5 marka leikur sem Blikar unnu með einu marki.

Blikum hefur gengið ágætlega gegn Víkingum á Kópavogsvelli. Í 6 efstu deildar leikjum gegn þeim á Kópavogsvelli eru 4 sigar, 1 jafntefli og 1 tap.

Það má búast við hörkuleik á mánudagskvöld enda hafa þessi lið eldað grátt silfur saman alveg frá því að Breiðablik hóf að leika knattspyrnu árið 1957.

Vonandi sjá flestir Blikar sér fært að mæta á Kópavogsvöll og hvetja okkar menn til sigurs.

Leikurinn er klukkan 18:00 á mánudagskvöld.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka