Breiðablik tekur við rekstri stúku við Kópavogsvöll
26.10.2013Hvergi á landinu eru jafn glæsileg íþróttamannvirki og í Kópavogi. Undanfarin ár hefur Kópavogsbær átt í viðræðum við stóru íþróttarfélögin í bænum um breytt fyrirkomulag á rekstri og nýtingu þessara mannvirkja. Vilji bæjaryfirvalda hefur staðið til þess að kjarninn í starfsemi íþróttafélaganna í bænum sé skilgreindur í einu íþróttamannvirki þar sem þau ein hafa húsbóndavald á forsendum sérstakra þjónustusamninga við bæinn.
Þannig er hugsunin t.d sú að kjarninn í starfsemi Gerplu sé í Versölum og kjarninn í starfsemi HK verði í Kórnum. Kjarninn í starfsemi okkar Blika verði í Kópavogsdal í Smára, Fífu og á Kópavogsvelli. Rökin fyrir þessari áherslu eru þau að með henni eykst hagkvæmni í rekstri mannvirkjanna og um leið félaganna. Félagsstarf eflist og árekstrum á milli félaganna fækkar, en þeir voru nokkuð tíðir þegar öll félögin voru að nota öll mannvirkin. Síðast en ekki síst er markmiðið það að bjóða upp á samhæfða nærþjónustu í hverfum og stytta ferðalög iðkenda á æfingar.
Önnur íþróttamannvirki í bæjarfélaginu verði þegar frá liður rekin af Kópavogsbæ sem úthlutar tímum í þeim í samræmi við þarfir félaganna. Þar er t.d. átt við íþróttahús sem finna má við flesta grunnskóla bæjarins. Einkum skal þar horft til þess að ung börn geti stundað íþróttir í sínu hverfi áður en að því kemur að þau eigi tök á að nýta sér þjónustuna í kjarnamannvirkum félaganna.
Stórt skref var stigið í þessum efnum haustið 2012 þegar knattspyrnudeild Breiðabliks hætti með æfingar í Kórnum og færði starfsemi sína alfarið yfir í Fífuna, sem deildin hætti nú að deila með HK eins og gert hafði verið um árabil. Í samræmi við nýjar áherslur jók knattspyrnudeild á sama tíma framboð sitt af æfingum á gervigrasinu við Fagralund. Er deildin nú með um 70% af úthlutuðum tímum bæjarins þar.
Til að mæta breytingunni fyrir þá iðkendur sem áttu nú um lengri veg að fara á æfingar, voru teknar upp rútuferðir, Blikavagninn, sem notið hefur mikilla vinsælda.
Um leið var kjarnasvæði félaganna skilgreint sem 2km hringar utan um Kórinn og Fífuna. Á þetta einkum við um knattspyrnu, þótt breytingin hafi vissulega haft áhrif á aðrar greinar.
Um 2/3 hlutar íbúá Kópavogs búa innan 2km radíuss frá Fífunni, Tekið skal fram að öllum íbúum að sjálfsögðu eftir sem áður frjálst að æfa með því félagi sem þeir kjósa og í þeim mannvirkjum sem þeir kjósa, burtséð frá búsetu í Kópavogi.
Annað stórt skref í ofangreindu ferli var tekið 22. október þegar bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma að ganga til samninga við okkur Blika um rekstur stúkunnar við Kópavogsvöll frá 1. janúar 2013 Stúkan er hið glæsilegasta mannvirki og mun strax hafa mikil áhrif á félagsstarf okkar Blika. Með þessari ákvörðun hefur Breiðablik eitt á sinni hendi rekstur mannvirkja í Kópavogsdal og um leið til afnota glæsilegustu höfuðstöðvar nokkurs íþróttafélags á Íslandi.
Á sama tíma samþykkti bæjarstjórn að semja við HK um rekstur Kórsins frá næstu áramótum. Sama dag skilar HK inn Digranesi til bæjarins sem þá tekur við rekstri þess húss og úthlutar tímum tii iðkenda þar. Samningur við HK kveður einnig á um það að þegar fullnægjandi keppnisaðstaða fyrir knattspyrnu verður tilbúin í Kór þá hætti HK að spila heimaleiki sína í knattspyrnu á Kópavogsvelli.
Næsta vers er að klára endanlega samningana við Kópavogsbæ á grundvelli samþykktar bæjarstjórnar.
Það er mikið fagnaðarefni að nú liggur fyrir ljós rammi utan um starfsemi Breiðabliks til næstu áratuga. Með þann ramma í höndum, öflugt innra starf og skýra framtíðasýn er okkur ekkert að vanbúnaði að halda Breiðabliki í fremstu röð íþróttafélaga á Íslandi um langa framtíð.
Orri Hlöðversson, formaður aðalstjórnar Breiðabliks