Breiðablik OPEN frestað fram í ágúst.
19.06.2014Kæru félagar,
af óviðráðanlegum ástæðum þurfum við því miður við að fresta golfmótinu sem vera átti á morgun.
Stefnt er að því að hafa mótið á sama stað 15.ágúst n.k. Nánar verður tilkynnt um það um leið og dagsetning hefur verið endanlega staðfest af hálfu staðarhaldara.
Vonumst til að sjá sem allra flesta þá.
f.h. mótsstjórnar Breiðablik OPEN,
Ólafur Björnsson.