Breiðablik OPEN 2015
05.08.2015Tíunda (10) opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 7. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer fram á Selsvelli við Flúðir.
Fyrirkomulag mótsins er með hefðbundnum hætti og mæting í skála er í síðasta lagi kl.12:15. Leiknar verða 18 holur (punktakeppni og höggleikur, karla og kvenna).
- Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
- Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
- Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
- Verðlaun - fyrir lengsta teighögg (á braut).
- Teiggjöf - að hætti Breiðablik OPEN.
Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28. Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði að móti loknu,í golfskálanum að Efra–Seli.
Þáttökugjald;
- 8.000 - með málsverði.
- 4.500 - án málsverðar.
Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com
Sjá auglýsingu!
Rita skal ,,Golfmót Breiðabliks 2015” í ,,efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt símanúmeri og/eða netfangi. Ennfremur skal taka fram ef fólk óskar eftir skráningum saman í holl.
Mótið er öllum opið.
Takið daginn frá og verið með á 10 ára afmælismótinu! -
Áfram Breiðablik !
Mótsstjórn.