BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Frábær veðurspá fyrir Breiðablik OPEN golfmótið

17.06.2014

9. opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 20. júní n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að þessu sinni fram á Kiðjabergsvelli í  Grímsnes-og Grafningshreppi 
Samtímaræsing (mæting í skála kl.12:15). Leiknar verða 18 holur (punktakeppni og höggleikur, karla og kvenna).

Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
Verðlaun - fyrir lengsta teighögg (á braut).
Teiggjöf - að hætti Breiðablik OPEN.

Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28. Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði að móti loknu,í golfskálanum.

Þáttökugjald;

  • 8.000 - með  málsverði.

Villisveppasúpa og nýbakað brauð

Hægeldað lambalæri með kryddjurtahjúp

Lambagljái og Bernaisesósa

Soðbakað bankabygg með rótargrænmetis teningum.

Blómkálsgratin .      
Kartöflusmælki með rauðlauk, steinselju, fetaosti og sólþurkkuðum tóm.
Salatlauf með furuhnetum, graskersfræum og cashewhnetum

Kaffi og konfekt á eftir.

  • 4.500 - án málsverðar.

Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com
Rita skal ,,Golfmót Breiðabliks 2014” í ,,efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þáttakanda ásamt símanúmeri og forgjöf. Ennfremur skal taka fram ef óskað er eftir skráningum saman í holl.
Skráningarlisti verður birtur og uppfærður reglulega á www.blikar.is.

Mótið er öllum opið.

Við lofum frábærri skemmtun.

Áfram Breiðablik !
Mótsstjórn.

Til baka