BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik og Víkingur á sunnudaginn kl.16.00 á Kópavogsvelli.

20.09.2014

Við minnum ykkur á leik Breiðabliks og Víkings í Pepsí-deild karla á sunnudaginn kl.16.00 á Kópavogsvelli.

Hið ágæta stuðningsfyrirtæki okkar TENGI ætlar að bjóða upp á grill fyrir leik frá kl.15.00, hoppukastala og einhverjar fleiri uppákomur.

Blikar eru ekki alveg sloppnir við falldrauginn og þurfum við því að ná í öll stigin þrjú á sunnudaginn. Stuðningur áhorfenda skiptir miklu máli.

Við hvetjum því alla sem vettlingi geta valdið að mæta á Kópavogsvöll á sunnudaginn til að hvetja þá grænklæddu til sigurs.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Smella hér til að sjá upphitunarmyndband.

Til baka