Breiðablik - KA á morgun í Fífunni kl.15:00
19.02.2016Blikar halda áfram keppni í Lengjubikarnum um helgina þegar liðið mætir frísku liði KA, en KA sigraði Fjarðarbyggð 8-0 í Boganum í sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum um síðustu helgi.
Á morgun, laugardag, mæta strákarnir KA-mönnum í Fífunni kl. 15:00
Breiðablik og KA eiga 6 leiki að baki í Lengjubikarnum. Blikar hafa unnið 5 sinnum og einu sinni hefir orðið jafntefli. Fyrsti sigurinn var í miklum markaleik árið 2000 sem Blikar unnu 6-5. Og nú síðast í fyrra í úrslitaleik Lengjubikarsins 2015 í leik sem Blikar unnu 1-0. Nánar um leikinn hér.
Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!